Níu íslensk mörk í Svíþjóð

Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði sex mörk.
Aldís Ásta Heimisdóttir skoraði sex mörk. Ljósmynd/Viktor Ljungström

Skara mátti þola tap, 29:25, á útivelli gegn Västerås í úrvalsdeild Svíþjóðar í handbolta í dag.

Aldís Ásta Heimisdóttir átti góðan leik fyrir Skara, þrátt fyrir tapið, og var markahæst í liðinu með sex mörk. Jóhanna Margrét Sigurðardóttir bætti við þremur.

Skara er í sjötta sæti deildarinnar með 23 stig eftir 21 leik.

Berta Rut Harðardóttir gerði fjögur mörk fyrir Kristianstad í sigri á Hallby á heimavelli, 24:23.

Kristianstad er í fimmta sæti með 24 stig. Átta efstu liðin fara í úrslitakeppnina. Kristianstad er öruggt þangað og Skara í góðum málum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert