Óðinn fór enn einu sinni á kostum

Óðinn Þór Ríkharðsson fagnar marki í leik með íslenska landsliðinu.
Óðinn Þór Ríkharðsson fagnar marki í leik með íslenska landsliðinu. AFP/Ina Fassbender

Óðinn Þór Ríkharðsson og liðsfélagar hans í Kadetten unnu tíu marka heimasigur á Geneve í lokaumferð efstu deildar svissneska handboltans í dag. 

Leiknum lauk 35:25 Kadetten í vil en Óðinn var markahæsti maður leiksins með tíu mörk úr ellefu skotum. 

Kadetten varð langefst í deildinni, tólf stigum á undan næsta liði, og fékk 49 stig af 54 mögulegum. Nú tekur við úrslitakeppnin um meistaratitilinn og þar leika Óðinn og félagar við Wacker Thun í átta liða úrslitum en Wacker endaði í áttunda sæti deildarinnar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert