Draga sig úr landsliðshópnum

Hildigunnur Einarsdóttir.
Hildigunnur Einarsdóttir. Ljósmynd/IHF

Handknattleikskonurnar Hildigunnur Einarsdóttir og Alfa Brá Oddsdóttir hafa dregið sig úr landsliðshópi Íslands fyrir leikina gegn Lúxemborg og Færeyjum í byrjun apríl. 

Glíma þær báðar við meiðsli og virðist ljóst að þátttaka þeirra í landsleikjunum tveimur sé ekki lengur á borðinu. 

Ísland mætir Lúxemborg ytra 3. apríl og Færeyjum heima þann 8. Leikirnir eru afar mikilvægir en með sigri í báðum tryggir Ísland sér sæti á lokamóti Evrópukeppninnar í Sviss undir lok árs.

Engir leikmenn voru kallaðir inn en Arnar Pétursson landsliðsþjálfari valdi 21 konu til æfinga fyrir leikina tvo. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert