Upphafsleikir HM í Berlín og Kaupmannahöfn

Mikkel Hansen og félagar í danska landsliðinu eru gestgjafar á …
Mikkel Hansen og félagar í danska landsliðinu eru gestgjafar á ásamt Þjóðverjum. AFP

Flautað verður til leiks á 26. heimsmeistaramóti karla í handknattleik í dag en það fer nú í fyrsta skipti fram í tveimur löndum, Þýskalandi og Danmörku.

Fyrir vikið eru tveir „upphafsleikir“ á mótinu en frá árinu 2007 hefur aðeins verið einn leikur á fyrsta leikdegi þar sem gestgjafarnir byrja yfirleitt á því að mæta „þægilegum“ mótherja. Í öll skiptin hefur heimaliðið unnið þennan fyrsta leik.

Nú verður flautað fyrst til leiks kl. 17.15 í dag í Berlín þar sem Þýskaland tekur á móti sameinuðu liði Kóreu. Kl. 19.15 hefjast leikar í Kaupmannahöfn þar sem Danir taka á móti Síle. Reikna má með öruggum heimasigrum. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert