Mæðgur spila saman í 1. deildinni

Þóra Kristín Jónsdóttir og Fanney Lind Thomas eigast við í …
Þóra Kristín Jónsdóttir og Fanney Lind Thomas eigast við í leik Hauka og Breiðabliks á síðustu leiktíð. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fanney Lind Thomas er gengin til liðs vð körfuknattleikslið Aþenu sem leikur í 1. deild kvenna. Karfan.is greindi fyrst frá.

Fanney, sem er 26 ára gömul, lék með Breiðabliki á síðustu leiktíð þar sem hún skoraði 4 stig að meðaltali í leik, ásamt því að taka þrjú fráköst og gefa eina stoðsendingu.

Hún hefur einnig leikið með Hamri, Fjölni, Þór frá Akureyri, Skallagrími og Val á ferlinum. Þá á hún að baki þrjá A-landsleiki.

Maria Lind Dalmay, dóttir Fanneyjar, leikur með Aþenu og þær mæðgur verða því liðsfélagar í 1. deildinni í vetur.

Maria hefur leikið tuttugu mínútur að meðaltali í fyrstu fjórum leikjum Aþena á tímabilinu til þessa en liðið, sem tekur þátt í Íslandsmótinu í fyrsta sinn, er í tíunda og næst neðsta sæti deildarinnar með 2 stig líkt og Stjarnan og Hamar-Þór.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert