Breiðablik fær landsliðsmann frá Val

Frank Aron Booker er á leið til Breiðabliks.
Frank Aron Booker er á leið til Breiðabliks. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Körfuknattleiksdeild Breiðabliks hefur gengið frá samningi við Frank Aron Booker. Kemur hann til félagsins frá Val.

Karfan.is greinir frá. Frank hefur verið mikið frá vegna meiðsla og ekkert leikið á þessari leiktíð.

Hann skoraði 15 stig, tók 4 fráköst og gaf 2 stoðsendingar í leik með Val tímabilið 2019/20. Þá lék hann fjóra landsleiki fyrir Ísland árið 2019.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert