Hrun í skoskri laxveiðiá

Frá ánni Awe á vesturströnd Skotlands.
Frá ánni Awe á vesturströnd Skotlands. Salmon & Trout Conservation

Inni á vef Landssambands stangveiðifélaga er vísað í grein á vegum Salmon & Trout Conservation Scotland um gríðarlega fækkun villtra laxa sem skila sér í ána Awe á vesturhluta Skotlands. Þetta hefur leitt til kröfu um lokun fiskeldisstöðva á svæðinu. Þá er þess farið á leit við stjórnvöld í Skotlandi að áframhaldandi uppbygging laxeldis í sjókvíum verði endurskoðuð.

Fram kemur að heimtur á villtum laxi í ánni Awe árið 2017 voru alls 480 laxar en árið 2016 skiluðu sér 870 laxar. Til samanburðar voru heimtur síðustu fimm ára að meðaltali 1.400 laxar. Allt frá árinu 1964 hefur verið fylgst með laxgengd í ánni Awe og er þetta einna best vaktaða vatnakerfi Skotlands. Heimtur þetta árið eru þær minnstu frá því að mælingar hófust og telja hagsmunaaðilar að algjört hrun blasi við laxfiskastofnum verði ekki gripið til aðgerða.

Kröfurnar eru þess efnis að nýjar eldisstöðvar verði að vera staðsettar utan gönguleiða laxfiska og þeim eldisstöðvum sem nú þegar eru í rekstri, staðsettar á viðkvæmum svæðum og hafa ekki náð að halda laxalús í lágmarki ætti að loka. Nauðsynlegt er að grípa til aðgerða ef á að takast að koma í veg fyrir áframhaldandi fækkun villtra laxa í ánni Awe og veita þarf stjórnvöldum á svæðinu það vald sem þarf.

Nánar má kynna sér þessa grein hér.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert