Ferðaþjónustufyrirtækið Fish Partner, sem sérhæfir sig í veiðiferðum fyrir erlenda og innlenda veiðimenn, bætti nýverið við nýjum veiðisvæðum við Þingvallavatn og Úlfljótsvatn.
Fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu að Kaldárhöfði við Þingvallavatn og Úlfljótsvatn séu nýjasta svæðið í flóru félagsins.
„Um er að ræða fjölbreytt svæði sem er fornfrægt stórurriðasvæði og mjög sterkt bleikjusvæði. Kaldárhöfði er syðsta veiðisvæðið í Þingvallavatni og nyrsta svæðið í Úlfljótsvatni. Svæðið nær frá Sprænutanga í Þingvallavatni í norðri og að landamörkum við Efri-Brú við Úlfljótsvatn í suðri.
Svæðið á sér langa veiðisögu og var sennilega besta urriðasvæði í Þingvallavatni fyrir tíma virkjana í Sogi. Með vaxandi veiði á urriða í vatninu verður spennandi að fylgjast með veiðinni á Kaldárhöfða á næstunni.
Hluti svæðisins er í Úlfljótsvatni og er það svæði bæði þekkt fyrir stóra urriða og nóg af bleikju. Urriðaveiðin er einkum góð nyrst í vatninu og út af hólmanum en bleikjuveiðin er góð á öllu svæðinu.“
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |