Gerður til að ögra náttúrulögmálunum

Audi A7 er aðeins 5,7 sekúndur upp í hundrað kílómetra …
Audi A7 er aðeins 5,7 sekúndur upp í hundrað kílómetra hraða á klukkustund. mbl.is/Árni Sæberg

Audi A7 er hlaðinn notendavænni tækni og gleður eigandann með ljósasýningu þegar ýtt er á takkann sem læsir dyrunum og tekur úr lás. Farangursrýmið í þessum hraðskreiða kúpubak má stækka svo að það rúmar til dæmis heilt reiðhjól.

Ég þurfti ekki að hugsa mig lengi um þegar mér var boðið að reynsluaka nýjum Audi A7 Sportback á dögunum, flaggskipi Audi, glæsivagni, að innan sem utan.

Bíllinn kom fyrst á markað árið 2010 og fékk fjótlega ýmis verðlaun sem besti bíll ársins, meðal annars hjá Esquire-karlatímaritinu og AutoWeek-bílablaðinu. Síðan eru liðin nokkur ár. A7 var uppfærður lítillega árið 2012, og aftur árið 2014 fyrir 2015-árgerðina, þegar ýmsum nýjungum var bætt við. Þar má nefna nýjustu afþreyingarkerfin, þar sem meðal annars er boðið upp á að bíllinn skilur handskrift, sem bílstjóri getur párað með puttanum á skjáinn. Þá er hægt tala við bílinn og biðja hann að framkvæma aðgerðir, eins og hækka og lækka hitann í bílnum og bíllinn svarar á móti: „Hvaða hitastig má bjóða þér?“

Kveinki maður sér upphátt undan kaffiþorsta upplýsir bíllinn mann um næstu vegasjoppu þar sem hægt er að kaupa sér rjúkandi kaffibolla.

Í aftursæti er einnig boðið upp á flott viðmót í snertiskjá þar sem aftursætisfarþegar geta stjórnað hitastigi meðal annars. Þar er aftur á móti ekki raddstýring í boði.

Auðvelt er stækka og minnka viðmót mælaborðsins og velja á …
Auðvelt er stækka og minnka viðmót mælaborðsins og velja á milli mismunandi aðgerða. mbl.is/Árni Sæberg

Afturhallandi lögun

Audi A7 er með svokölluðu coupé-lagi, sem þýðir að hann er afturhallandi. Þetta er straumlínulagaður bíll, gerður til að kljúfa vindinn og ögra náttúrulögmálunum, enda á hann að ná úr kyrrstöðu upp í 100 km hraða á klukkustund á aðeins 5,7 sekúndum. Sá sem þetta ritar var duglegur að gefa honum inn, og getur staðfest að bíllinn var fljótur upp í hundraðið þrátt fyrir að vera rúm tvö tonn að þyngd. Vissulega þarf maður að bíða ögn eftir að finna bakið þrykkjast aftur í leðursætið, en þegar það gerist er það afar fullnægjandi tilfinning að finna fyrir hestöflunum 286 sem TDI-dísilvélin skilar manni.

Er ég ók um borg og bý á bílnum á reynslutímanum varð mér hugsað til þess fyrir hvern svona bíll væri. Vísað er til hans í lýsingum sem „executive“ sem mætti þá útleggjast sem forstjórabíll, en ég velti fyrir mér hvort hann hentaði kannski líka hópum eins og röppurum, íþróttastjörnum eða fagurkerum. Allir þessir hópar og mun fleiri til myndu sóma sér vel fyrir aftan stýrið á þessum bíl, og kunna að meta flauelsmjúka aksturseiginleikana og frábæra fjöðrunina. Það eitt get ég þó fullyrt, að bíllinn er ekki „fyrir alla“ enda er verðmiðinn hár, nálægt 15 milljónum með þeim aukabúnaði sem þessi prufubíll var hlaðinn. Fleiri hafa þó ráð á bílnum sé aukabúnaði sleppt, en grunnútgáfan losar rétt tæpar 10 milljónir króna.

Allt viðmót bakkmyndavélar er þægilegt, og bíllinn aðstoðar ökumann við …
Allt viðmót bakkmyndavélar er þægilegt, og bíllinn aðstoðar ökumann við að leggja í stæði. mbl.is/Árni Sæberg

Þráðlaust net í boði bílsins

Ef vikið er aðeins að innviðum A7 ber þess fyrst að geta að auðvelt er að komast inn og út úr honum og veghljóð er lítið. Gott athafnarými er fyrir bílstjóra og farþega, sem geta lagt frá sér hefðbundnar gosflöskur í hurðir og í miðju hinnar smekklegu innréttingar bílsins. Sömuleiðis, eins og virðist vera í æ fleiri bílum í dag, er hægt að leggja þá síma sem bjóða upp á snertilausa hleðslu frá sér á þar til gert svæði í hólfi milli sætanna, en þar er einnig boðið upp á USB-tengi. Gaman er að segja frá því að meðal aukabúnaðar í bílnum er að hægt er að setja í hann SIM-kort og þar með hafa hann sítengdan við netið, aukinheldur sem allir farþegar geta þá verið á þráðlausu neti í boði bílsins og bílstjórans.

Stundum kæta litlu hlutirnir mann, og takkar í bílstjórahurðinni, þar sem hægt var að kveikja og slökkva á barnalæsingu, þóttu mér afar handhægir.

Hvað aftursætin varðar þá er þar ágætis plass fyrir fætur, en sökum afturhallandi lögunar bílsins mæli ég ekki með því að fólk yfir meðalhæð sitji þar of lengi.

Hönnun bílsins höfðaði til mín. Ytra byrði tónar við innra byrði í hönnuninni, langar línur í bland við skálínur gefa manni sterka gæðatilfinningu.

Skottið opnast og lokast rafrænt, og þar inn má setja þónokkurn farangur, enda er rýmið talsvert mikið, 535 lítrar. Með aftursætisbökin niðri komast þarna fyrir einir 1.390 lítrar. Það er eins og sæmileg IKEA-ferð, Costco-vörur og jafnvel nokkrir Bónuspokar til viðbótar. Þá er fremur auðvelt að koma hjóli í skottið til dæmis, sem er yfirleitt hausverkur í flestum bílum.

Boðið er upp á varadekk undir gólfinu í skottinu, en ekki bara kvoðu og pumpu, eins og stundum er látið nægja nú til dags.

Framsetning efnis á skjám og mælum Audi A7 er af …
Framsetning efnis á skjám og mælum Audi A7 er af bestu sort. mbl.is/Árni Sæberg

Notendavænir skjáir

Þá er það afþreyingarkrefið og mælaborðið, sem ég minntist stuttlega á hér á undan. Boðið er upp á þrjá skjái; einn beint aftan við stýrið, mælaborðið, og svo tvo skjái í miðjunni. Þarna er um snertiskjái að ræða og ættu flestir snjallsímaeigendur að eiga auðvelt með að rata um viðmótið. Auk fyrrnefndrar raddstýringar og handskriftarmöguleika er kerfið allt hið þægilegasta í umgengni og notkun og afar notendavænt. Ekki er þó mælt með því að ökumaður sé mikið að bjástra við skjáina meðan á akstri stendur, enda aftengist ákveðin virkni þar meðan bíllinn er á ferð. Með því að halda putta lengi á aðgerðum á snertiskjánum er hægt að bókamerkja aðgerðir og sníða bílinn þannig að hverjum og einum. Efri skjárinn inniheldur allt upplýsinga- og afþreyingarkerfið, en neðri skjárinn er einkum ætlaður fyrir miðstöðina.

Auðvelt er að stækka og minnka viðmót mælaborðsins og skruna með þumlunum í gegnum þá möguleika sem boðið er upp á á meðan haldið er um stýrið. Þannig má kalla fram úrval útvarpsstöðva, gíraupplýsingar, klukkuna, snúningshraðamælinn, hraðamælinn o.s.frv.

Bíllinn er með nema og myndavélar allt um kring og meðal annars getur hann hjálpað til við að leggja í stæði. Eftir að hafa tileinkað sér það kerfi kemur það vafalaust mörgum að góðum notum.

Frábærir aksturseiginleikar og fjöðrun gera ökuferðina ánægjulega. Útlitið skemmir heldur …
Frábærir aksturseiginleikar og fjöðrun gera ökuferðina ánægjulega. Útlitið skemmir heldur ekki fyrir. mbl.is/Árni Sæberg

Innra minni bílsins man hvernig ökumaður skildi við hann og setur sætin í þá stillingu sem hann skildi þau síðast eftir í.

Þrátt fyrir alla tæknina er líka boðið upp á gamaldags skrúfutakka til að hækka og lækka í útvarpi, en þarna segjast framleiðendur vera að „brúa kynslóðabilið“.

Gírskiptingin er hefðbundin P N R ásamt D/S sem stendur fyrir sport, en þannig skiptir bíllinn sér hraðar upp. Skiptingin, sem er á sínum stað í miðjunni, er falleg, og einungis nauðsynlegt að hnika henni fram og til baka með frekar lausri snertinu. Sé „stönginni“ ýtt til hægri fer bíllinn í handstýrða gírskiptingu, og þá er einnig hægt að grípa í blöðkurnar sem liggja við fingurgómana í stýrinu til að skipta bílnum handvirkt upp og niður.

Hurðir eru með „ljúflokun“ og „ljúfopnun“, svo gripið sé til IKEA-hugtaka, og sætin eru frábær í einu orði sagt. Þegar bílnum er læst og tekinn úr lás verður mikið ljósasjó úti fyrir, sem kætir eigandann í hvert skipti. Almennt getur eigandinn unað sér glaður við akstur þessa bíls, og þegar hann er ekki við stýrið getur hann látið sig hlakka til næstu ökuferðar.

Undir húddinu er sex strokka 287 hestafla dísilvél, og togið …
Undir húddinu er sex strokka 287 hestafla dísilvél, og togið er 620 NM. Er því hægur vandi að aka hratt af stað þegar hugurinn girnist. mbl.is/Árni Sæberg

Audi A7 Sportback

  • 6 strokka, 2.967 cc dísilvél
  • 287 hestöfl, 620 NM
  • 8 gíra tiptronic sjálfskipting
  • 5.5 -5.8 l / 100km í blönduðum akstri
  • 0-100 km/klst á 5,7 sek
  • 250 km/klst hámarkshraði
  • Fjórhjóladrifinn
  • 255/40 R20 dekk
  • 2.015 kg eiginþyngd
  • 535 lítrar farangursrými
  • 142-150 g/km af Co2
  • Verð eins og prófaður: 14.770.000 kr
Langar línur í bland við skálínur einkenna hönnun að innan …
Langar línur í bland við skálínur einkenna hönnun að innan sem utan og gefa Audi A7 góðan heildarsvip. mbl.is/Árni Sæberg
Í skottið komast til dæmis þrjár ferðatöskur og meira til.
Í skottið komast til dæmis þrjár ferðatöskur og meira til. Ljósmynd/Þóroddur Bjarnason
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: