Ferðast aftur í tímann

Lexus RX 450 Hybrid 2020 árgerðin er af fjórðu kynslóð …
Lexus RX 450 Hybrid 2020 árgerðin er af fjórðu kynslóð þessara vinsælu
„Á Spáni er gott að djamma og djúsa, diskótekunum á. Hei! Sólbrenndur með „Quick Tan“-brúsa. Í sandölum og ermalausum bol.“

Þegar ég sagði fjölskyldu og vinum frá því að ég væri nýkominn heim frá Ibiza að keyra Lexus-bifreiðar vakti það umsvifalaust hugrenningatengsl eins og þau sem lýst er hér fremst í textanum, í laginu Sandalar, í flutningi Ladda. Þó að það hafi vissulega verið prýðilegt veður meðan á dvöl minni stóð, sólin skinið í heiði og heitur andvarinn verið ljúfur og notalegur, gafst lítill tími til að skella á sig „Quick Tan“-sólarolíu og flatmaga við sundlaugina, né heldur gafst tími til að djamma og djúsa í froðudiskói niðri við strönd.

Menn, bæði hér á Íslandi og annars staðar, eru fljótir að tengja þessa litlu sólareyju, sem liggur úti fyrir austurströnd Spánar, steinsnar frá eyjunum Mallorca og Menorka, við djamm og djús. Heimamenn eru orðnir dálítið þreyttir á þeirri ímynd og hafa í seinni tíð lagt áherslu á byggingu hágæða dvalarstaða þar sem meira er höfðað til efnameira fólks í stað hinna dæmigerðu sólarlandagleðipinna. Flugvélafarmar af þeim síðarnefndu hafa komið frá Bretlandi og fleiri löndum á hverju sumri um árabil og dansað trylltan dans á partíeyjunni við undirleik frægustu plötusnúða í heimi, manna eins og David Guetta og Calvin Harris. Það kom bílablaðamanni því ekkert sérstaklega mikið á óvart að sjá stór skilti með myndum af þeim félögum tveimur skömmu eftir að stigið var út úr flugstöðinni við komuna til Ibiza.

30 ára afmæli Lexus

En eins og fyrr sagði var ég ekki kominn til Ibiza til að djamma og djúsa heldur til að aka um eyjuna í Lexus-bifreiðum. Ekki endilega bara einni bifreið, heldur nokkrum, á ólíkum aldri. Ástæðan fyrir því að boðið var upp á þetta úrval bifreiða var 30 ára afmæli Lexus-vörumerkisins, sem er eins og flestir ættu að vita, í eigu japanska bílarisans Toyota.

Aðalnúmerið í ferðinni var samt 2020 útgáfan af stóra Lexus RX 450h-sportjeppanum, með sjálfhlaðandi hybrid-vél. Í kynningum á bílnum á lúxushótelinu sem ég dvaldi á, var fullyrt að slík sjálfhlaðandi vél, og hybrid-tækni Lexus, væri betri kostur en að vera á tengiltvinnbíl sem stungið er í samband. Sel ég það ekki dýrara en ég keypti það en staðreyndin er þó sú að bíllinn ekur um á rafmagni helming tímans og eftir því sem meira og betur er bremsað því ríkulegri skammtur af rafmagni rennur inn á batteríið.

Þegar komið var á hótelið af flugvellinum biðu bílarnir í röð á planinu fyrir utan, tilbúnir í aksturinn. Það var sérstaklega gaman að sjá þar fyrstu kynslóðina, LS 400 sedan-bílinn, frá 1989, og svo fyrsta lúxus Lexus RX-sportjeppann frá 1998, og sönn tilhlökkun að fá tækifæri til að aka þeim.

Gerður fyrir Bandaríkjamenn

Lexus var upphaflega þróaður fyrir Bandaríkjamarkað. Toyota hafði slegið í gegn þar, enda bílarnir þeirra góðir og ódýrir, en eftirspurn var eftir dýrari og stærri bíl með meiri þægindum en Toyota bauð upp á. Þar sem Toyota skilgreinir sig ekki sem lúxusmerki var ákveðið að þróa bíl undir nýju vörumerki. Eftir að hafa farið yfir lista sem á voru 219 nöfn, nöfn eins og Vectre, Verone, Caliber og Alexis, varð Lexus-nafnið að lokum ofan á.

En til að gera langa sögu stutta skellti ég mér í tvo góða bíltúra, annars vegar á LS 400 frá 1989 og hins vegar á RX frá 1998, áður en ég prófaði þann nýjasta. Var það bráðskemmtileg reynsla. Að keyra LS 400-bílinn var til dæmis eins og að stíga 30 ár aftur í tímann, og auðvelt að sjá af hverju bíllinn þótti vel heppnaður á sínum tíma og varð söluhæsti lúxusbíllinn í Bandaríkjunum innan örfárra ára. Fjöðrunin er sérstaklega eftirminnileg, og hreyfingarnar svo mjúkar að manni leið eins og svifið væri um spænskar göturnar á töfrateppi Aladdins.

Að aka nýja RX-inum, sem er af fjórðu kynslóð, var ekkert slor heldur. Sætin gripu þétt um mann frá fyrstu sekúndu, upplýsingakerfið er til fyrirmyndar, og bíllinn er búinn öllum þeim helstu þægindum og búnaði sem í boði er á markaðnum í dag. Þar má nefna flottar myndavélar allan hringinn, gott öryggiskerfi í akstri, aðgengilegt upplýsingakerfi og mælaborð, afar vandaða innréttingu, gott pláss að framan og aftan, og tengingu við Android Auto og Apple Play.

Þó að nýi RX-bíllinn sé ekki ný kynslóð, hafa verið gerðar nokkrar breytingar milli árgerða. Til dæmis er bíllinn fáanlegur með aðlaganlegum BladeScan-háljósabúnaði (e. BladeScan Adaptive High-Beam System) sem gerir akstur í myrkri öruggari, og eykur útsýni um 75% án þess að blinda aðra ökumenn. Þá hefur ytra útlit verið gert enn rennilegra en áður, og umbætur verið gerðar í bremsukerfum. Þá hefur bíllinn bæði verið lengdur og breikkaður lítillega.

30 nýjungar kynntar

Lexus hefur alla tíð verið framarlega í flokki er kemur að nýjungum, en í ferðinni voru sérstaklega kynntar 30 nýjungar sem Lexus hefur komið með að borðinu í bílaheiminum. Þar má nefna öryggispúða í stillanlegu stýri, stafrænt stillanlega hliðarspegla, og leiðsögukerfi sem staðalbúnað, en það var fyrst í boði í LS 400-bílnum frá árinu 1998.

Þá varð Lexus fyrsti bílaframleiðandinn til að framleiða lúxussportjeppa eins og sagði hér á undan, Lexus RX 300 1998 árgerð, og árið 2005 varð Lexus fyrstur framleiðenda til að bjóða upp á sjálfhlaðanlegan lúxus Hybrid-bíl, með tilkomu RX 400h. Á þeim tveimur áratugum sem liðnir eru frá fyrsta Lexus-sportjeppanum, hefur framleiðandinn stöðugt breytt og bætt bílinn, en RX-bíllinn varð fljótlega best seldi Lexus-bíll í heimi. Samanlögð sala af þessari tegund Lexus-bíla er komin yfir þrjár milljónir eintaka.

Að fara til Ibiza og keyra þar Lexus-bifreiðar er jafn ánægjulegt og það hljómar, og ég mæli eindregið með að fólk geri annaðhvort eða bæði ef tækifæri gefst til. Auðvitað er Ibiza tvær flugleiðir í burtu, en Lexus-umboðið er nær í tíma og rúmi, einfaldlega í Garðabænum, í sama húsi og Toyota-umboðið.

Lexus RX 450h

» 3,5 lítra V6 tvinn-vél.

» 313 hestöfl / 335 Nm

» 6 þrepa sjálfskipting

» 7,9-8,2 l í blönduðum akstri

» 0-100 km/klst á 7,7 sek.

» Hámarkshraði: 200 km/klst.

» Drif á öllum hjólum

» Eigin þyngd: 2.160 kg

» Farangursrými: 539 lítrar

» Mengunargildi: 179-186 g/km

» Umboð: Lexus á Íslandi

» Verð frá: 11.950.000 kr.

Lexus RX 450 Hybrid 2020 árgerðin er af fjórðu kynslóð …
Lexus RX 450 Hybrid 2020 árgerðin er af fjórðu kynslóð þessara vinsælu
Lexus 450 h
Lexus 450 h
Lexus 450 h
Lexus 450 h
Lexus 450 h
Lexus 450 h
Blaðamaður við stýrið á Lexus RX á Ibiza á Spáni.
Blaðamaður við stýrið á Lexus RX á Ibiza á Spáni.
Lexus 450 h
Lexus 450 h
Lexus 450 h
Lexus 450 h
Lexus 450 h
Lexus 450 h
Lexus-nafnið var upphaflega valið úr 219 öðrum nöfnum
Lexus-nafnið var upphaflega valið úr 219 öðrum nöfnum
Lexus 450 h
Lexus 450 h
Lexus 450 h
Lexus 450 h
Lexus 450 h
Lexus 450 h
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur: