Rafmögnuð jeppasýning hjá ISBAND

Jeep Wrangler Rubicon 4xe Plug-In-Hybrid.
Jeep Wrangler Rubicon 4xe Plug-In-Hybrid.

Bílaumboðið ISBAND, umboðsaðili Jeep á Íslandi, frumsýnir næstkomandi laugardag, 29. maí,  hinn goðsagnakennda jeppa, Jeep Wrangler Rubicon 4xe í tengiltvinnútfærslu.

„Wrangler Rubicon 4xe er gríðarlega öflugur, 373 hestöfl og með 637 Nm í tog, 100% driflæsingar að framan og að aftan, lágt drif og með aftengjanlegri jafnvægisstöng að framan,“ segir í tilkynningu.

Wrangler Rubicon 4xe kostar frá 9.490.000 kr.  Hann verður hins vegar frumsýndur í Launch Edition útfærslu með ríkulegum staðalbúnaði á 10.490.000 kr.  Er hann sagður henta einstaklega vel til breytinga.

Í boði eru 35”-40” breytingapakkar frá breytingaverkstæði ISBAND.

Á sýningunni verður einnig forsýning á nýjum Jeep Compass Limited 4xe Plug-In-Hybrid, en hann kemur nú með nýrri innréttingu og enn ríkulegri aukabúnaði en áður.  Verð á Jeep Compass Limited 4xe er frá 5.990.000 kr  og verðið á nýju útfærslunni er 6.399.000 kr

Þá verða til sýnis Jeep Renegade Trailhawk 4xe Plug-In-Hybrid verð 5.490.000 kr.,  Jeep Grand Cherokee óbreyttir og 33”-35” breyttir og RAM 3500 pallbílar með 35, 37” og 40” breytingu.

Sýningin er í sýningarsal ISBAND að Þverholti 6 í Mosfellsbæ og er opin frá klukkan 12 til 16.

mbl.is