Nýir bílar frumsýndir á vetrarsýningu Heklu

Touareq.
Touareq. Ljósmynd/Aðsend

Hekla blæs til vetrarsýningar á Laugaveginum á morgun, laugardaginn 27. janúar, á milli klukkan 12-16.

„Við kynnum nýjan Volkswagen Touareg sem er kraftmesti Plug-in Volkswagen frá upphafi og glæsilega viðbót í ID. fjölskylduna - ID.7 sem valinn var bíll ársins í Þýskalandi í flokki Premium bíla (GCOTY),” segir í tilkynningu.

Á sýningunni verður lögð áhersla á rafmagnsbíla og mun starfsfólk Heklu kynna og veita ráðgjöf um allt það nýjasta í hleðslustöðvum. Einnig verður fulltrúi frá ON á staðnum.

Ljósmynd/Aðsend

„Við kynnum ný og betri verð á Skoda Enyaq, Volkswagen ID.4 og ID.5. Allt rafbílar sem fengið hafa frábærar viðtökur hér á landi. Þá verða sérkjör af sýningarbílum sem tilbúnir eru til afhendingar. Að auki sýnum við nýtt merki hjá Heklu, GWM ORA sem eru vel búnir rafbílar á frábæru verði. Hinn glæsilegi Audi Q8 e-tron verður einnig á sýningunni auk flaggskipsins e-tron GT en nokkrir bílar eru á lager sem hægt er að fá afhenta á næstu dögum. Gestum og gangandi verður boðið upp á ljúffengan ís frá Valdísi, pönnukökur og rjúkandi kaffi frá Sjöstrand,” segir einnig í tilkynningunni.

Björn Víglundsson framkvæmdastjóra sölusviðs Heklu, segir Heklu hafa verið leiðandi umboð í sölu á vistvænu bílum síðastliðinn áratug.

„Það er okkur fagnaðarefni að geta boðið upp á þetta úrval rafmagnsbíla frá okkar framúrskarandi vörumerkjum. Þetta er stórt ár fyrir Heklu því fyrirtækið heldur upp á 90 ára afmæli sitt á árinu. Það er því frábært að byrja árið á því að kynna tvo glæsilega bíla, Volkswagen ID.7 og Volkswagen Touareg eHybrid. Við kynnum einnig ný og spennandi verð á okkar helstu rafbílum, Volkswagen ID.4 4Motion og Skoda Enyaq 85X. Þá verða sérvaldir sýningarbílar á sérstöku tilboðsverði sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara. Við hlökkum mikið til að fá fólk til okkar á laugardaginn, við lofum góðum móttökum og nýbökuðum pönnukökum “ segir Björn í tilkynningunni.

mbl.is