Tekur börnin með í vinnuna

Jessica Alba og börnin hennar þrjú á forsíðu tímaritsins Parents.
Jessica Alba og börnin hennar þrjú á forsíðu tímaritsins Parents. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Leikkonan Jessica Alba er á forsíðu desember-tímarits Parents ásamt börnum sínum þremur. Hún ræðir Honest og Baby2baby sem eru samfélagslega ábyrg fyrirtæki sem leggja sitt af mörkum tengt umhverfinu og fyrir þá sem minna mega sín í samfélaginu og þurfa aðstoð með börnin sín. 

Alba er ákveðin í því að ala börnin sín upp á meðvitaðan hátt. Hún kennir þeim að borga áfram alla þá góðvild sem heimurinn gefur manni. 

„Ég tek börnin mín með mér í viðskiptaferðir. Ég tók Honor nýverið með mér til Mílanó. Við fórum tveimur dögum áður en ég átti fund í borginni, svo við gætum átt gæðastundir saman. Hún var í öðru fundarherbergi þegar ég sat viðskiptafundi. Ég hef því miður ekki tök á því að keyra hana í skólann og sækja á hverjum degi. Hún sér að tíminn minn skiptir mig máli og hennar líka. Að vinna sjálf í þágu samfélagsins gerir mig vonandi að fyrirmynd barna minna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert