Hjálmar fórnaði sér í óléttumyndatökuna

Hjálmar Örn Jóhannsson fórnaði sér í óléttumyndatökuna.
Hjálmar Örn Jóhannsson fórnaði sér í óléttumyndatökuna.

Hjálmar Örn Jóhannsson grínisti og unnusta hans, Ljósbrá Loga, eiga von á barni. Hjálmar tók að sér að pósta bumbumyndinni. Hann sagði frá því á Facebook rétt áðan að þau væru með risafréttir úr Árbænum, þar sem fjölskyldan býr. Það væri nefnilega von á öðru barni. 

Fyrir eiga þau Hjálmar og Ljósbrá Loga soninn Loga sem varð ársgamall í maí. 

Börn á mbl.is óska þeim hjartanlega til hamingju með óléttuna. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert