Það verður markaðsstemning hjá Frú Laugu og á Kaffi Laugalæk í dag laugardaginn 1. desember á milli klukkan 11:00 -15:00. Boðið verður upp á lifandi tónlist og skemmtiatriði fyrir börn.
Kátt á Klambra verður með jólaföndur á staðnum frá klukkan 11:00 þar sem allir geta komið og skreytt piparkökur og búið til jólakort.
Skjóða úr Leikhópnum Lottu skemmtir börnum á milli klukkan 12:00 -13:00 í dag og jólasveinninn heimsækir staðinn á milli klukkan 13.30-14.30.