Litla stúlkan víst dóttir Kim Kardashian

Kim Kardashian.
Kim Kardashian. mbl.is/AFP

Kim Kardashian deildi gamalli mynd af sér á Instagram og fannst hálfsystur hennar, Kylie Jenner, Kim sérstaklega lík Chicago á myndinni. Í kjölfarið hélt einn fylgjandi Kim því fram að dóttir hennar væri ekki lík henni og gaf í skyn að dóttir hennar væri ekki hennar. 

Chicago kom í heiminn með hjálp staðgöngumóður fyrr á þessu ári og sagði fylgjandinn barnið frekar líkt eiginmanni Kim, Kanye West, og staðgöngumóðurinni. Systir Kim Kardashian, Khloé Kardashain, kom systur sinni til varnar eins og People greinir frá. 

„Chicago er algerlega líffræðilegt barn Kimberly. Þökkum guði fyrir að hún gat fengið staðgöngumóður og við fengum sætu fallegu Chi Chi,“ skrifaði Khloé. 

Fylgjandinn virtist ekki vera alveg með það á hreinu hvernig staðgöngumæðrun virkaði og tók Khloé það einnig að sér að útskýra það.  

View this post on Instagram

Baby K

A post shared by Kim Kardashian West (@kimkardashian) on Dec 16, 2018 at 3:25pm PST



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert