Meryl Streep orðin amma

Meryl Streep er orðin amma.
Meryl Streep er orðin amma. mbl.is/AFP

Hin 69 ára gamla Meryl Streep hefur tekist á við mörg hlutverk en í vikunni fékk hún hins vegar nýtt og öðruvísi hlutverk þegar dóttir hennar, Mamie Gummer, eignaðist son. Us Weekly greinir frá fæðingunni en þetta er fyrsta barnabarn leikkonunnar. 

Mamie Gummer er leikkona eins og móðir sín og er 35 ára. Eignaðist hún barnið með unnusta sínum, Mehar Sethi. Tilkynnt var um komu erfingjans í desember og mætti Gummer kasólétt í rauða dregilinn í janúar þegar nýjasta þáttaröðin af True Detective var frumsýnd en Gummer fer með stórt hlutverk í þáttunum. 

Þrátt fyrir að þetta sé fyrsta barnabarn Streep er Gummer ekki elsta barn Streep og eiginmanns hennar, myndlistarmannsins Don Gummer. Elsta barn þeirra er hinn 39 ára gamli Harry. Auk þeirra Mamie og Harry eiga þau tvær dætur sem eru 32 ára og 27 ára. 

Leikkonan Mamie Gummer ólétt á rauða dreglinum í janúar.
Leikkonan Mamie Gummer ólétt á rauða dreglinum í janúar. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert