Nammibarinn er ómissandi í veislum

Svana Rún Símonardóttir starfar sem starfsendurhæfingarráðgjafi hjá Virk. Hún er mikill fagurkeri sem hefur áhuga á fólki og fallegum hlutum.

„Ég er félagsráðgjafi að mennt og hef unun af því starfi en allt frá því ég man eftir mér hefur mér líka þótt gaman að hönnun, skreytingum og heimilum. Það má kannski segja að áhugi minn hafi byrjað í blómabúðinni hjá foreldrum mínum og systrum en þau ráku blóma- og gjafavöruverslun lengi. Þar fékk ég oft að dunda mér við að búa til skreytingar, raða í hillur og breyta. Ég er alltaf að breyta, bæta og skreyta heima og hef virkilega gaman af þessu áhugamáli mínu, en ég hef einnig verið að taka að mér verkefni eins og að skreyta fyrir veislur á borð við fermingar og brúðkaup svo eitthvað sé nefnt. Við höfum verið þrjár saman í að skreyta fyrir stærri veislur og viðburði. Systir mín Kristín Aðalheiður Símonardóttur og vinkona mín og stjúpmóðir sonar míns, Svandís Lilja Níelsdóttir, hafa verið með mér í því. Við Svandís stofnuðum einnig nokkurs konar markað í bílskúrnum heima fyrir jólin, sem við kölluðum Svarta svani og það gekk aldeilis vel og vonandi verður framhald á því ævintýri.“

Mikið fyrir hluti sem fást á mörkuðum

Svana og eiginmaður hennar Ríkarð Svavar Axelsson eiga sex börn samtals. Fjölskyldan er stór og í gegnum hana fær Svana mörg tækifæri til að skreyta og gera fallegt.

Heimili Svönu er rómantískt og mikið fyrir augað.

„Ég hef ótrúlega gaman af því að skreyta fyrir afmæli og er afmæliskakan er mikið uppáhald hjá mér.“

Svana bjó erlendis í um átta ár, í Svíþjóð, Þýskalandi og í Noregi og þar kviknaði áhugi hennar á flóamörkuðum. Hún mælir með því að fólk skreyti fyrir fermingarveislur með hlutum sem það á heima hjá sér. Ferðatöskur, luktir, leikföng barnanna sem og áhugamál eiga erindi sem skreytingar.

„Þegar ég skreyti er ég yfirleitt með einhverja mynd í huganum sem ég vinn eftir. Stundum vindur sú hugmynd upp á sig og endar á óvæntan og skemmtilegan hátt en ég er dugleg að skoða bækur og blöð, Pinterest og fleira sem getur gefið mér hugmyndir. Síðan er mikilvægt að finna út hvað fermingarbarnið vill hafa. Þannig verður fermingarveislan persónulegri og fellur að smekk barnsins. Hvaða litur er í uppáhaldi, hvaða tómstundir stundar það, hvað finnst barninu skemmtilegt að gera? Einnig finnst mér mikilvægt að hafa fermingarbarnið með í undirbúningnum ef það hefur áhuga á því, þau eru oft með allskonar skemmtilegar hugmyndir sem gaman er að vinna eftir.“

Nammibarinn er ómissandi

Svana er sérfræðingur þegar kemur að því að gera nammibar fyrir veislur. „Þar sem við erum með skreytingaþjónustu eigum við mikið af glerílátum og hlutum sem hægt er að setja nammi í. Ég mæli með að setja myndir af fermingarbarninu og hluti sem því finnst skemmtilegir og svo bara að þora að leika sér með nammibarinn. Ég geri meira fremur en minna þegar kemur að skrauti á þessum stað í veislunni. Kleinuhringjabarinn er einnig skemmtileg hugmynd sem hefur slegið í gegn hjá öllum aldurshópum en það sem ég nota til að stilla kleinuhringjunum upp er til að mynda gömul barnahilla úr Ikea sem ég málaði og gamall trékassi sem Heiða systir fann á flóamarkaði. Ef fólk langar að hafa nammibar mæli ég með að kaupa nammið í stórverslunum á borð við Costco, Bónus og Stórkaup svo eitthvað sé nefnt. Ég kaupi skraut víða, einnig erlendis og í gegnum netverslanir. Þegar ég skreyti nota ég gjarnan ávexti, blóm, luktir með kerti, steina, trjádrumba, sultukrukkur sem ég skreyti með blúndum eða fjöðrum jafnvel, skemmtileg spakmæli, spegla í fallegum römmum, flöskur, bækur, seríur, nammi og bara hvaðeina sem mér dettur í hug.“

Poppbar og skemmtilegir drykkir

Hún segir að þegar kemur að skreytingum sé alltaf gaman að notast við það sem maður finnur úti í náttúrunni. Könglar, greni og blóm geti verið fallegt á borði, en þar sem fermingar eru á þeim tíma þegar frost liggur í jörðu þá sé það oft áskorun. „Það má þó oft finna fallegar trjágreinar sem hægt er að skreyta með seríum. Svo er líka gaman að hengja merkimiða á greinarnar og biðja veislugesti um að skrifa skilaboð eða kveðjur til fermingarbarnsins og hengja á greinina.“

„Svo er einnig hægt að vera með poppbar – það kostar ekki mikið og er mjög fallegt og skemmtilegt fyrir fermingarveisluna. Hægt er að vera með karmellupopp, jarðarberjapopp, venjulegt popp og þar fram eftir götunum. Eins getur verið gaman að vera með drykki, t.d. saft. Hægt er að kaupa glerflöskur í Söstrene Grene og merkja flöskurnar með límmiðum sem fást þar líka með skemmtilegum nöfnum. Börn elska að fá sér hindberjasaft, jarðarberjasaft, appelsínusaft og fleira í þeim dúr.“

Þegar kemur að því að nota óvenjulega hluti af heimilinu þá er Svana sérfræðingur á því sviði. „Ég hef notast við gamlar ferðatöskur og set kökur í þær – þá er það í sjóræningja- eða ferðaþema. Það má líka nota gamlar töskur sem skreytingu á veisluborðið, stilla þeim upp á endann og setja mynd af fermingarbarninu inn í. Ef þú hugsar út í það er hægt að nota svo margt af heimilinu til að skreyta. Sem dæmi þá eru gamlar bækur æðislegar til að hækka undir kökum á veisluborði. Körfubolti getur verið flott skraut og fimleikahringir yfir veisluborði með blómaskreytingum. Skautar, skíði og hvað eina sem kemur upp í hugann getur verið fallegt til að tengja við fermingarbarnið og gera upplifun gesta skemmtilega og óvenjulega.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert