Frítt í sund og í Húsdýragarðinn

Það verður frítt fyrir alla í sundlaugar í dag sumardaginn …
Það verður frítt fyrir alla í sundlaugar í dag sumardaginn fyrsta. mbl.is/Thinkstock

Frítt verður í sundlaugar í Reykjavík og Fjölskyldu- og húsdýragarðinn fyrir alla, allan daginn í dag, sumardaginn fyrsta. Skátarnir verða með hoppukastala og alls konar skemmtilegt skátafjör við sundlaugarnar og í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum á eftirfarandi tímum:

Árbæjarlaug kl. 13:00-16:00

Fjölskyldu- og húsdýragarð kl. 11:00-14:00

Grafarvogslaug kl. 13:00-16:00

Breiðholtslaug kl. 10:00-12:00

Sundhöll Reykjavíkur kl. 13:00-16:00

Laugardalslaug kl. 13:00-16:00

Vesturbæjarlaug kl. 11:00-13:00

Víkingar eru með sumarhátíð í Bústaðahverfi, þar verður boðið upp á heitar pylsur, farið í skrúðgöngu, skemmtidagskrá í Bústaðakirkju og hopp og hí í félagsheimilinu Víkinni. Sjá nánar um dagskrá sumardagsins fyrsta í Bústaðahverfi. 

Í Grafarholti hefst Framhlaupið í Leirdalnum klukkan 10.00, gestir fá að spreyta sig á frisbígolfi,  klukkan 11.00 verður dýrablessun í Guðríðarkirkju og 12.30 verður skrúðganga sem leggur af stað frá Sæmundarskóla, með lúðrasveit Grafarvogs og Grafarholts í broddi fylkingar. Boðið verður upp á alls kyns skemmtiatriði í Guðríðarkirkju, Friðrik Dór tekur lagið og haldið verður bingó. Grafarholtsbúar eru hvattir til að kynna sér dagskrá sumardagsins fyrsta í Grafarholti. 

Börn óska landsmönnum gleðilegan sumardaginn fyrsta og vona að börn og fullorðnir finni sér eitthvað áhugavert að gera saman í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert