Dásamleg í kjól móður sinnar

Courteney Cox birti nýverið ljósmynd af sér og dóttur sinni …
Courteney Cox birti nýverið ljósmynd af sér og dóttur sinni Coco Arquette í sama kjólnum.

Friends-leikkonan Courteney Cox birti nýverið ljósmynd af sér og dóttur sinni Coco Arquette í sama kjólnum. Ljósmyndirnar eru teknar með 21 árs millibili en sýna hvað mæðgurnar eru líkar. 

Arquette er fædd árið 2004 og er dóttir leikarans David Arquette.

Cox klæddist blúndukjólnum fallega á rauða dreglinum þegar kvikmyndin Snake Eyes var frumsýnd í júlí árið 1998.

Ljósmyndin minnir á mikilvægi þess að fara vel með tímabilsfatnað sem komandi kynslóðir gætu haft áhuga á að endurnýta. 

Cox og Arquette giftu sig árið 1999 en skildu að skiptum árið 2010. 

Courteney er trúlofuð tónlistarmanninum Johnny McDaid. Þau tilkynntu um trúlofun sína árið 2014. David Arquette kvæntist Christina McLarty árið 2015. þau eiga tvo syni saman. 

View this post on Instagram

I’m not one to hold onto things but this was a damn good purchase! 21 years later...

A post shared by Courteney Cox (@courteneycoxofficial) on Jun 11, 2019 at 12:56pm PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert