Svona æfir Meghan eftir fæðingu

Meghan Markle hefur farið rólega af stað eftir fæðingu.
Meghan Markle hefur farið rólega af stað eftir fæðingu. AFP

Það eru aðeins fimm vikur síðan Archie litli kom í heiminn svo Meghan Markle hertogaynja af Sussex er ekki byrjuð að æfa mjög mikið. Hún hefur þó verið að stunda rólegt jóga. Þá hefur hún einnig farið í göngutúra um garðana í kringum Windsor-kastala. 

Katie Nicholl, sérfræðingur í málefnum konungsfjölskyldunnar, sagði í viðtali við ET að Meghan væri mjög hrifin af hreyfingu og heilbrigðum lífsstíl. Hún sagði Meghan þó fara rólega af stað og einbeita sér frekar að syni sínum en ræktinni núna.

Að sögn Nicholl er Meghan ekkert að stressa sig yfir að komast aftur í gott form eftir fæðingu heldur er hún bara að njóta tímans með Archie litla.

Doria, mamma Meghan, er jógakennari og lærði sérstaklega um jógaæfingar eftir fæðingu og barnajóga til að geta kennt dóttur sinni. 

Móðir Meghan, Doria, er jógakennari.
Móðir Meghan, Doria, er jógakennari. OLI SCARFF
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert