Frítt á 17. júní fyrir þá sem mæta í búningi

Þjóðhátíðardagurinn 17. júní á Árbæjarsafn verður tileinkaður þjóðbúningum og gestir eru hvattir til að mæta í eigin búningum sama hverrar þjóðar búningarnir eru. Fjallkonu safnsins verður skautað kl. 14 og geta gestir fylgst með því hvernig faldur, faldblæja og spöng eru sett upp og borin við skautbúning.

Félagar Fornbílaklúbbsins verða á svæðinu með eðalvagna sína til sýnis á safninu frá kl. 13 til 16. Harmonikkutónar munu hljóma um svæðið í bland við lokkandi lummuilminn úr eldhúsinu í gamla Árbænum.

Í safnhúsunum má sjá fjölmargar sýningar eins og Neyzlan – Reykjavík á 20. öld (Lækjargata 4) og HEIMAT – tveir heimar (Kornhúsið) sem fjallar um komu þýskra kvenna til Íslands í leit að vinnu og betra lífi eftir lok seinni heimsstyrjaldarinnar. Fyrir yngstu kynslóðina er tilvalið að heimsækja sýninguna Komdu að leika! Þar sem gefst tækifæri til að leika með leikföng frá ýmsum tímum. Auk þess er fjölbreytt úrval af útileikföngum til staðar sem gestum býðst að nota að vild, svo sem kassabílar, húla-hringir, snú-snú, kubbar og stultur.

Ókeypis aðgangur fyrir börn, eldri borgara, öryrkja og þá sem mæta í eigin þjóðbúningi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert