Ákvað að bíða vegna fyrri erfiðleika

Leikkonan Shay Mitchell opnar sig um blendnar tilfinningar á meðgöngunni.
Leikkonan Shay Mitchell opnar sig um blendnar tilfinningar á meðgöngunni. skjáskot/Youtube

Leikkonan Shay Mitchell tilkynnti fyrir nokkrum vikum að hún ætti von á sínu fyrsta barni með kærasta sínum Matte Babel, Mitchell var komin vel á leið þegar hún tilkynnti um óléttuna en hún ákvað að bíða lengi með að segja frá vegna þess að hún missti fóstur í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum Youtube-þætti Mitchell, Almost Ready, sem fjallar um meðgönguna.

Mitchell talar um fyrstu þungunina í Youtube-þættinum og tárast um leið og hún rifjar upp erfiðar minningar. „Ég ákvað að bíða með tilkynninguna vegna þess sem kom fyrir í fyrsta sinn. Það gekk ekki eins og ég vonaði og var ótrúlega erfitt.

„Fyrst þegar ég varð ólétt í fyrra höfðum við Matt ekki verið að skipuleggja það, það gerðist og við vorum mjög spennt,“ sagði Mitchell í myndbandinu. „Ég var komin um 14 vikur, á þeim tíma hafði ég ekki hugmynd um hlutfall fósturláta. Þegar það gerðist kom það mér algjörlega að óvörum. Ég á enn þessar myndir á símanum mínum og læknisheimsóknirnar og það er skrítið af því ég hef augljóslega ekki skoðað þær. En það er ekki eins og ég gleymi því bara. Svo auðvitað er ég mjög glöð en ég finn enn til vegna þess sem ég missti.“

Mitchell sýnir verðandi barnaherbergið í Youtube-þættinum sem hún hefur frestað vegna fyrra áfalls. Hún er þó þakklát fyrir að hafa bara misst fóstur einu sinni. 

„Ég veit um aðrar konur og vinkonur mínar sem hafa gengið í gegnum meiri erfiðleika,“ sagði Mitchell. „Það er mjög erfitt af því þér líður eins og þú sért ekki heil, sem kona, og það er ekki góð tilfinning.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert