Sagði son sinn ljótan

Quaylaa Ann og sonur hennar.
Quaylaa Ann og sonur hennar. Skjáskot/Instagram

Margir segja að öll börn séu falleg. Þessi mamma í Bandaríkjunum er þó ekki á sama máli ef marka má myndband sem hún deildi á Facebook nýlega. Í myndbandinu sagði hún að sonur sinn væri ljótur, skrítinn og líkti honum við fígúru í Alien vs Predator. 

Konan sem umræðir, Quaylaa Ann, sat með son sinn í kyrrstæðum bílnum til að láta hann ropa á meðan tvíburasystir hans svaf í aftursætinu. Hún nýtti tímann til að streyma beinni útsendingu á Facebook þar sem hún talar um hvað sonurinn er ljótur. 

„Minn stærsti ótti var að eignast ljótt barn, og sjáið bara hvað í fjandanum ég á núna,“ sagði hin unga móðir. „Ég vissi að það væru helmingslíkur að eitt af þessum börnum yrðu ljót, út af honum,“ sagði hún og átti við föður barnanna. Hún talaði einnig um að fólk horfði á þau þegar þau væru á almannafæri, því litli drengurinn væri svo ljótur. 

Hún sagðist vona að hann yrði ekki ljótur allt sitt líf. Svo bætti hún við að hann væri ekkert líkur henni, því hún væri ekki ljót og hafi ekki verið ljótt barn. 

Um miðbik myndbandsins, skiptir hún þó um skoðun og segir að hann sé ekki endilega ljótur en henni finnist hann skrítinn í útliti. 

Eins og gefur að skilja fór myndbandið á flug um netið og hafa margir hraunað yfir hina ungu Ann og sagt henni að barnið hennar sé fallegt. Vinir hennar komu henni þó til bjargar og sögðu hana hafa verið að grínast. 

View this post on Instagram

He look just like you tho sis... this beautiful baby boy... 😞 I think he is adorable

A post shared by Tia Becca (@tia_becca_) on Jul 25, 2019 at 9:16am PDT

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert