Lítið Trump-barn komið í heiminn

Donald Trump á orðið mörg barnabörn.
Donald Trump á orðið mörg barnabörn. mbl.is/AFP

Donald Trump forseti Bandaríkjanna eignaðist sitt tíunda barnabarn þegar sonur hans Eric Trump og eiginkona hans, Lara Trump, eignuðust sitt annað barn. Hjónin tilkynntu um komu barnsins á samfélagsmiðlum. 

Sagðist sonur forsetans vera spenntur að bjóða Carolinu Dorothy Trump velkomna í heiminn á mánudaginn. Tengdadóttir forsetans birti mynd af allri fjölskyldunni saman á Instagram. „Fjögurra manna fjölskylda,“ skrifaði hún við myndina sem virðist hafa verið tekin á spítala. 

Eric og Lara Trump giftu sig í Florída árið 2014 eftir sex ára samband. Þau eiga fyrir soninn Eric Luke Trump. Auk þess á Donald Trump yngri fimm börn með fyrrverandi eiginkonu sinni, Vanessu, og Ivanka Trump á þrjú börn með eiginmanni sínum, Jered Kushner. Barnabörnin forsetans eru því orðin tíu. 

View this post on Instagram

Family of FOUR! 🥰🥰🥰🥰

A post shared by Lara Trump (@laraleatrump) on Aug 20, 2019 at 6:40am PDT



Lara Trump og Eric Trump í júlí.
Lara Trump og Eric Trump í júlí. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert