Hefði látið frysta eggin

Kirsten Dunst veit hvað hún vill.
Kirsten Dunst veit hvað hún vill. mbl.is/AFP

Leikkonan Kirsten Dunst segir í viðtali á vef Net-a-Porter að hún hefði látið frysta egg sín ef hún hefði ekki hitt unnusta sinn, Jesse Plemons, árið 2016. Parið eignaðist sitt fyrsta barn fyrir rúmlega ári.  

„Ég hélt ég myndi eiga erfitt með að verða ólétt en þetta kom á óvart. Ef ég hefði ekki hitt Jesse hefði ég fryst egg mín,“ segir Dunst í viðtalinu og segist hafa verið heppin. 

Dunst og Plemons hafa verið saman í næstum því fjögur ár en eru enn bara trúlofuð. Leikkonan segir það trufla móður sína en sjálf segir hún að þau geti varla verið giftari þar sem þau eiga barn saman. 

Dunst hefur verið í sviðsljósinu síðan hún var lítil stelpa og segir það hjálpa sér í dag. Hún segist ekki hafa farið í ræktina einu sinni síðan hún eignaðist barn sitt í maí 2018. Hún finnur enga þörf til að endurheimta magavöðvana. Eftir að hún eignaðist son sinn ákvað hún að vera ánægð með líkama sinn eins og hann er hverju sinni og losaði sig við mikið af fötum. 

Jesse Plemons og Kirsten Dunst.
Jesse Plemons og Kirsten Dunst. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert