Komin 102 vikur á leið

Ellie Kemper birti speglasjálfu á Instagram en grínleikkonan er mjög …
Ellie Kemper birti speglasjálfu á Instagram en grínleikkonan er mjög ólétt um þessar mundir. skjáskot/Instagram

Unbreakable Kimmy Schmidt-stjarnan Ellie Kemper á von á öðru barni sínu með eiginmanni sínum. Kemper er komin með svo stóra kúlu að hún grínaðist með það á Instagram að hún væri komin 102 vikur á leið. 

Grínleikkonan og eig­inmaður henn­ar, Michael Kom­an, eignuðust sitt fyrsta barn fyrir þremur árum en þau hafa verið gift síðan árið 2012. Þessi þungun virðist þó vera erfiðari en sú fyrri eins og hún greindi frá í sjónvarpsviðtali í byrjun júní að því er fram kemur á vef People. 

„Fyrsti þriðjungurinn var skelfilegur,“ sagði Kemper og lýsti því hvernig allt hefði verið auðveldara þegar hún gekk með son sinn. „Þegar ég var ólétt að honum hafði ég það fínt. Fyrsti þriðjungurinn [í þetta skiptið], bara hræðilegur. Bara þreytt og óglatt og allt það.“

View this post on Instagram

102 weeks pregnant!

A post shared by Ellie Kemper (@elliekemper) on Sep 2, 2019 at 6:00am PDT

Ellie Kemper á von á sínu öðru barni.
Ellie Kemper á von á sínu öðru barni. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert