Bauð háa fjárhæð fyrir barn með NBA-stjörnu

Dennis Rodman segir Madonnu hafa verið tilbúna að borga fyrir …
Dennis Rodman segir Madonnu hafa verið tilbúna að borga fyrir barn. mbl.is/AFP

Fyrrverandi NBA-stjarnan Dennis Rodman greindi frá því að hann hafði reynt að barna Madonnu á tíunda áratug síðustu aldar. Rodman, sem var að hitta söngkonuna árið 1993, sagði í viðtali við Breakfast Club að hún hefði boðið honum margar milljónir Bandaríkjadala ef hún myndi fæða barn þeirra. 

Rodman lýsir því að hann hafi verið í spilavíti í Las Vegas þegar Madonna hringdi frá New York og sagði að hún væri með egglos. Rodman segist hafa grínast í fyrstu með að spyrja hvað egglos væri eiginlega. Hann sagði þó við Madonnu að hann kæmi eftir fimm tíma en hún flaug honum á einkaþotu til New York.

Hann reyndi síðan að barna Madonnu í New York en það gekk ekki. Fylgdi það sögu Rodmans að Madonna hefði boðið honum 20 milljónir Bandaríkjadala ef hún myndi fæða barn hans. Telur hann ekki ólíklegt að hún hafi boðið öðrum mönnum þetta. 

Madonna eignaðist fyrsta barn sitt, Lourdes Leon, í október árið 1996 með þáverandi kærasta sínum, Carlos Leon. Þá var Madonna 38 ára. 

Rodman byrjar að lýsa þessari undarlegu tilraun til þess að geta barn með Madonnu þegar um 12 mínútur eru liðnar af myndbandinu hér að neðan. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert