Gleymdi að þurrka brúnkuna af fyrir brjóstagjöf

Rafael litli fékk myndarlegt brúnkufar í andlitið.
Rafael litli fékk myndarlegt brúnkufar í andlitið. Skjáskot/Twitter

Keziah Jozefiah deildi einstaklega fyndnum myndum af syni sínum Rafael eftir að hún hafði gefið honum brjóst. Jozefiah hafði borið á sig brúnkukrem fyrr um daginn og var ekki búin að þurrka það af sem endaði með því að sonur hennar varð brúnn í framan. 

Jozefiah deildi myndum á Twitter og óskaði eftir því að einhver minnti hana á að þvo brúnkuna af sér áður en hún gæfi syni sínum að drekka. 

Myndirnar hafa fengið mikla athygli á samfélagsmiðlum og vakið kátínu sumra, en aðrir hafa kallað hana vitlausa. Hún birti síðar mynd af Rafael litla þar sem hún var búin að þurrka honum í framan og virðist honum ekki hafa orðið meint af.

Jozefiah sagði í viðtali við The Sun að henni hafi fundist þetta sprenghlægileg uppákoma. „Þegar ég leit niður á Raf fór ég bara að skellihlæja. Ég trúði ekki að brúnkan hefði látið hann líta út eins og Homer. Raf var sofandi þannig að ég reyndi að drífa mig að bera á mig brúnkuna, en síðan vaknaði hann glorhungraður á meðan ég var að bera það á mig,“ sagði Jozefiah og bætti við að hún ætlaði ekki að gera þessi mistök aftur.

 

 

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert