Leikstjórinn Quentin Tarantino og eiginkona hans, ísraelska leik- og söngkonan Daniella Pick, eignuðust sitt fyrsta barn í lok febrúar. Talsmaður leikstjórans staðfesti við vef E! og fleiri miðla að hjónin hefðu eignast son 22. febrúar.
Talsmaður leikstjórans staðfesti í ágúst að hjónin ættu von á barni. Hjónin giftu sig í nóvember 2018 og trúlofuðu sig árinu áður. Tarantino verður 57 ára í næsta mánuði en eiginkona hans er 36 ára.
Tarantino hefur gefið það út að hann ætli að hætta að leikstýra eftir tíundu mynd sína. Næsta mynd hans verður sú tíunda í röðinni. Ef allt fer samkvæmt áætlun mun kvikmyndagerðarmaðurinn hafa góðan tíma til þess að sinna uppeldi sonar síns.