Íþróttafréttakonan Edda Sif Pálsdóttir og kærasti hennar Vilhjálmur Siggeirsson gáfu syni sínum nafn nú um helgina. Drengurinn fékk nafnið Magnús Berg en hann kom í heiminn 10. febrúar síðastliðinn.
Afi hans, þingmaðurinn Páll Magnússon, segir í færslu sinni á Facebook að Magnúsarnafnið sé það algengasta í fjölskyldunni. Til að aðgreina hann frá öðrum Magnúsum í fjölskyldunni hefur Páll gefið honum gælunafnið Magnús bæjó.
Þessi afastrákur fékk í dag nafnið Magnús Berg. Magnús er algengasta nafnið í föðurætt móðurinnar og einn viðstaddur var...
Posted by Páll Magnússon on Sunday, 29 March 2020