Vill þrjú eða fjögur börn en ekki endilega karlmann

Rihanna ætlar að stofna fjölskyldu á næstu tíu árum.
Rihanna ætlar að stofna fjölskyldu á næstu tíu árum. AFP

Tónlistarkonan Rihanna er bæði einhleyp og barnlaus. Tónlistarkonan, sem er nýorðin 32 ára, greindi þó frá því í viðtali við Vogue að ekki bara barn heldur börn væru á 10 ára planinu óháð því hvort sálufélaginn bankaði upp á. 

Blaðamaður Vogue spurði stjörnuna hvar hún sæi sig eftir tíu ár. 

„Tíu ár? Ég verð 42! Ég verð ævaforn,“ svaraði Rihanna. „Ég mun eiga börn — þrjú eða fjögur.“

Rihanna sagði að það skipti ekki máli hvort hún yrði búin að finna sér lífsförunaut. Hún ætlaði samt að eignast börn. Sagði hún samfélagið gera lítið úr mæðrum þar sem faðir væri ekki til staðar. Hamingja væri eina heilbrigða sambandið á milli foreldris og barns. Að mati Rihönnu er ást það eina sem skiptir máli í uppeldi barns.

Rihanna.
Rihanna. AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert