Tónlistarkonan Katy Perry tilkynnti í gærkvöldi að hún og unnusti hennar Orlando Bloom ættu von á stúlku, líkt og hún hafði vonast til.
Perry tilkynnti í byrjun mars að þau ættu von á barni. Stuttu eftir tilkynninguna hrópaði hún á tónleikum að hún vonaðist til að það yrði stelpa og hún hefur því fengið óskir sínar uppfylltar.
Þetta er fyrsta barn þeirra Perry og Blooms saman en fyrir á Bloom soninn Flynn. Von er á stúlkunni litlu í sumar. Þau ætluðu einnig að ganga í það heilaga í Japan í sumar en hafa frestað brúðkaupinu um óákveðinn tíma vegna útbreiðslu kórónuveirunnar.