Katrín hertogaynja af Cambrigde segir að yngsti sonur hennar Lúðvík litli líkist henni mest af börnum hennar. Lúðvík prins fagnaði tveggja ára afmæli í gær og venju samkvæmt birti fjölskyldan nýjar myndir af honum á Instagram.
„Allir segja alltaf að Lúðvík sé nákvæmlega eins og Katrín. Hún elskar það og finnst það mjög fallegt, hún grínast oft með að hann sé eina barnið hennar sem líkist henni,“ sagði heimildarmaður People í viðtali.
Auk mynda af prinsinum litla birti fjölskyldan einnig listaverk eftir hann, regnbogahönd, en regnboginn hefur verið táknmynd stuðnings við heilbrigðiskerfið í Bretlandi á tímum kórónuveiru.
Lúðvík litli gat ekki haldið stóra afmælisveislu til að fagna áfanganum, ekki frekar en önnur afmælisbörn í apríl. Katrín hertogaynja er þó sögð vera mikið fyrir afmælisveislur og passaði eflaust upp á að fjölskyldan skemmti sér saman á afmælisdeginum.
View this post on InstagramA post shared by Kensington Palace (@kensingtonroyal) on Apr 22, 2020 at 2:30pm PDT
View this post on InstagramA post shared by Kensington Palace (@kensingtonroyal) on Apr 23, 2020 at 12:00am PDT