Barn Harðar og Móeiðar kom á undan áætlun

Móeiður Lárusdóttir og Hörður Björgvin Magnússon.
Móeiður Lárusdóttir og Hörður Björgvin Magnússon. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Landsliðsmaðurinn Hörður Björg­vin Magnús­son og sambýliskona hans, Móeiður Lár­us­dótt­ir, eignuðust sitt fyrsta barn 25. apríl. Móeiður greindi frá komu barnsins með því að birta mynd af barninu á Instagram. 

„Aðeins á undan áætlun,“ skrifaði Móeiður á Instagram en það er ekki nema tæp vika síðan hún birti óléttumynd af sér og greindi frá því að hún væri komin 34 vikur á leið. 

Móeiður hefur verið dugleg að birta myndir frá meðgöngunni og vakti parið mikla athygli í lok síðasta árs fyrir glæsilega kynjaveislu. Þá kom í ljós að parið ætti von á stelpu. 

Barnavefurinn óskar parinu hjartanlega til hamingju með frumburðinn. 

View this post on Instagram

25.04 2020 🤍 aðeins á undan áætlun.

A post shared by Móeiður Lárusdóttir (@moeidur) on Apr 28, 2020 at 12:44pm PDT



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert