Malia og Sasha Obama, dætur Baracks og Michelle Obama, voru sjö og tíu ára þegar þær fluttu í Hvíta húsið. Michelle Obama var ströng móðir sem ætlaði ekki að leyfa dætrum sínum að alast upp án þess að lyfta litla fingri. Þetta kemur í nýrri heimildarmynd um forsetafrúna fyrrverandi á Netflix að því fram kemur á vef Page Six.
Frú Obama þurfti að sárbiðja þjónustufólk í Hvíta húsinu að þrífa ekki herbergi dætra sinna. Dætrum forsetahjónanna fannst ósanngjarnt að þær þyrftu að sjá um þvottinn og búa um rúmið á meðan móðir þeirra fékk fimm stjörnu þjónustu.
„Ég er forsetafrúin og ég er með háskólagráðu,“ sagði frú Obama þegar dæturnar kvörtuðu.
Michelle Obama gerði fleiri breytingar í Hvíta húsinu. Hún vildi til dæmis ekki að þjónar þeirra gengju um í jakkafötum. Margir þeirra voru svartir og vildi hún ekki að dætur sínar myndu alast upp við svarta menn í slíkum einkennisbúningum þjónustufólks.
Myndin Becoming á Netflix er byggð á samnefndri metsölubók um Michelle Obama sem var gefin út eftir að Barack Obama lét af störfum sem forseti Bandaríkjanna.