Leikfélag Akureyrar leitar að leikurum í söngleikinn Benedikt búálfur sem frumsýndur verður í febrúar 2021. Hlutverkin sem um ræðir eru Benedikt búálfur og Dídí mannabarn.
Opnar söng- og leikprufur verða haldnar í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri helgina 30.—31. maí og í Hörpu í Reykjavík helgina 6.—7. júní.
Aðeins leikarar, sem lokið hafa námi í leiklist eða hafa umtalsverða reynslu í atvinnuleikhúsi eða söng, koma til greina. Aldurstakmark er 18 ára. Skráning í prufurnar fer fram á www.mak.is.