Leikkonan Sasha Pieterse á von á sínu fyrsta barni með eiginmanni sínum Hudson Sheaffer. Pieterse sló gegn í þáttunum Pretty Little Liars sem sýndir voru á árunum 2010 til 2017.
Pieterse og Sheaffer tilkynntu um óléttuna á brúðkaupsafmæli sínu en þau fagna tveggja ára brúðkaupsafmæli í ár.
„Við erum svo ótrúlega spennt að deila loksins þessum frábæru fréttum með ykkur. Við munum eignast litla manneskju í október. Í dag er tveggja ára brúðkaupsafmælið okkar og hvað er betra en að deila gleði en á þessum degi. Móðurhlutverkið er nú þegar mitt uppáhaldshlutverk,“ skrifaði Pieterse í færslu sinni á Instagram.
View this post on InstagramA post shared by Sasha Pieterse Sheaffer (@sashapieterse) on May 27, 2020 at 9:19am PDT