Fyrirsætan Chrissy Teigen á von á sínu þriðja barni með eiginmanni sínum John Legend. Hún fékk leyfi til þess að fara í bótox á meðgöngunni og er ástæðan er ekki tengd útlitinu.
„Ég fæ mjög slæma höfuðverki á meðgöngunni,“ skrifaði Teigen á Twitter og útskýrði af hverju hún var himinlifandi þegar hún fékk að fara í bótox. Auk þess að fá bótox í hálsinn fær Teigen sprautur sem eiga að gera það að verkum að höfuðverkirnir minnki. „Allavega, þetta er bara svo slæmt en ég sé loksins ljósið.“
I get really really bad pregnancy headaches. was thrilled to be cleared to do neck muscle botox along with a crazy combo of beta blocker shots and radio wave frequency something something doctor terms. anyhow man it’s just so bad but I see the light finally
— chrissy teigen (@chrissyteigen) September 5, 2020
Þetta er ekki fyrsta óvenjulega aðgerðin sem hún fer í á meðgöngunni. Teigen fór nefnilega í brjóstaminnkun í byrjun meðgöngunnar án þess að vita að hún væri ólétt. Teigen og Legend fóru í tæknifrjóvgun til þess eignast börnin sín tvö.
„Ég tók óléttupróf áður en ég fór í aðgerðina eins og maður á að gera. Prófið kom neikvætt út. Það var hins vegar ekki neikvætt. Nokkrum vikum eftir aðgerðina tók ég óléttupróf eins og ég hef gert næstum því mánaðarlega í mörg ár og beðið til Guðs að fá jákvætt próf. Ég hafði aldrei fengið jákvætt próf áður,“ sagði Teigen á Twitter í sumar eftir að hún greindi frá óléttunni.