Leikarinn Alec Baldwin og eiginkona hans, Hilaria Baldwin, eignuðust sitt fimmta barn saman í vikunni. Þegar hjónin greindu frá óléttunni í vor hafði Hilaria misst tvö fóstur í röð.
„Við eignuðumst barn í gærkvöldi. Hann er fullkominn og við gætum ekki verið hamingjusamari,“ skrifaði frú Baldwin þegar hún greindi frá komu barnsins. Hjónin eru ekki enn búin að greina frá nafni þess.
Leikarinn á dótturina Ireland Baldwin með leikkonunni Kim Basinger en Ireland verður 25 ára á árinu. Börn Baldwin-hjónanna eru töluvert yngri; það elsta fæddist í ágúst 2013, barn númer tvö kom í heiminn 17. júní 2015. Þriðja barnið kom í heiminn í september 2016 og það fjórða árið 2018.
View this post on InstagramWe had a baby last night. He is perfect and we couldn’t be happier 🌟. Stay tuned for a name🤍
A post shared by Hilaria Thomas Baldwin (@hilariabaldwin) on Sep 9, 2020 at 7:08am PDT