Fyrirsætan Chrissy Teigen og tónlistarmaðurinn John Legend misstu ófætt barn sitt um mánuði eftir að þau tilkynntu um að von væri á þriðja barninu. Teigen opnaði sig í færslu á Instagram í nótt þar sem hún greinir frá þessu.
„Við erum í áfalli og finnum sársauka sem við höfðum aðeins heyrt um. Sársauka sem við höfum aldrei fundið fyrir áður. Við gátum ekki stoppað blæðinguna og gefið barninu þá vökva sem hann þurfti, þrátt fyrri poka eftir poka af blóði. Það var bara ekki nóg,“ skrifar Teigen í færslunni. Með fylgja hjartnæmar myndir af þeim hjónum á spítalanum.
Teigen hafði verið rúmliggjandi í nokkrar vikur og um helgina var hún lögð inn á spítala vegna blæðinga.
Hún greindi frá því í færslunni að þau hafi verið búin að ákveða nafnið á syni sínum. Hann átti að heita Jack.
„Við erum svo þakklát fyrir lífið sem við eigum, fyrir yndislegu börnin okkar Lunu og Miles, fyrir alla mögnuðu hlutina sem við höfum fengið að upplifa. En það getur ekki verið sólskin á hverjum degi. Á þessum dimmustu dögum, við syrgjum, við grátum úr okkur augun. En við föðmumst og elskum hvort annað meira og komumst í gegnum þetta,“ sagði Teigen.
View this post on InstagramA post shared by chrissy teigen (@chrissyteigen) on Sep 30, 2020 at 8:58pm PDT