Ánægð að eiga von á strák en ekki stelpu

Emma Roberts er ánægð að hún eigi von á strák …
Emma Roberts er ánægð að hún eigi von á strák en ekki stelpu. AFP

Leikkonan Emma Roberts er ánægð með að eiga von á strák en ekki stelpu. Ástæðan er að ef hún ætti von á stelpu hefði hún misst sig miklu meira í að kaupa föt á barnið. 

Roberts gengur nú með sitt fyrsta barn. Í viðtali við Glamour segist hún vera að reyna að halda aftur af sér í búðum. „Ég er búin að vera að reyna að kaupa ekki tonn af dóti því ég elska að versla. Það eina sem ég get sagt er að ég þakka Guði fyrir að ég skuli ekki eiga von á stelpu því fatamálin væru bara í ruglinu,“ sagði Roberts.

Roberts hefur fengið langanir í alls kyns mat sem hún var ekki jafn hrifin af áður. „Bollakökur frá Sprinkles eru þráhyggja hjá mér. Ég elska bollakökur, en af einhverri ástæðu elska ég kökur frá Sprinkles á meðgöngunni og í heimsfaraldinum. Salt & Straw-ís líka. Þau eru með eitthvert hrekkjavökubragð sem heitir The Great Candycopia, og það hefur eiginlega verið vandamál hvað ég borða mikið af honum,“ segir Roberts.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert