Barn Busy Philipps samkynhneigt

Leikkonan Busy Philipps með börnum sínum.
Leikkonan Busy Philipps með börnum sínum. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Leik­kon­an Busy Phil­ipps, sem á tvö börn, þau Birdie og Cricket, greinir frá því að eldra barn hennar, sem er tólf ára að aldri, sé samkynhneigt og noti fornafnið hán í stað hann eða hún. Þetta kemur fram á vef Independent

Phil­ipps er þekkt­ust fyr­ir hlut­verk sín í sjón­varpsþátt­um á borð við Coug­ar Town. Ný­lega gaf hún út ævim­inn­ing­ar sín­ar, This Will Only Hurt a Little.

Leikkonan greindi fyrst frá þessu í hlaðvarpi sínu, Busy Philipps Is Doing Her Best, þar sem hún segir að Birdie hafi fyrst rætt þetta við fjölskyldu sína tíu ára að aldri. Philipps segist ekki vera sérfræðingur í þessum málum og ruglist oft heima fyrir á fornafninu það en hún sé að gera sitt besta og hafi fengið leyfi hjá háni til að tala um málið opinberlega svo hún geti gert skurk í að beita réttu fornafni á almannafæri líka. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert