Líklegustu nöfnin fyrir barn Harry og Meghan

Líklegt þykir að Harry og Meghan nefni annað barn sitt …
Líklegt þykir að Harry og Meghan nefni annað barn sitt í höfuðið á Díönu prinsessu, móður Harrys. AFP

Um leið og Harry og Meghan tilkynntu um að þau ættu von á öðru barni fóru veðbankar á fullt að geta sér til um líkleg nöfn á ófætt barnið.

Margir eru fullvissir um að barnið verði skírt í höfuðið á Díönu prinsessu, Díana ef það er stúlka en Spencer ef það er strákur. 

Þá eru nöfn sem byrja á bókstafnum A einnig afar vinsæl en fólk virðist veðja á að Harry og Meghan velji nafn í stíl við eldri bróðurinn Archie. Nöfnin Alfie, Arthur og Alexandra hafa því vermt toppsæti veðbanka að undanförnu.

Þá er áhugavert að skoða hvaða nöfn hafa hvað hæstan stuðul og eru því ólíklegust að mati veðbanka en þau eru Camilla, Andrew og loks William sem hefur stuðulinn 100/1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert