Hlakkar til að verða faðir

Aaron Rodgers og Shailene Woodley eru trúlofuð.
Aaron Rodgers og Shailene Woodley eru trúlofuð. Samsett mynd

NFL-leikmanninn Aaron Rodgers langar til að verða faðir. Hann fann ástina á síðasta ári og trúlofaðist leikkonunni Shailene Woodley. 

Í spjalli við Zenith í beinni útsendingu á Instagram sagði Rodgers að næsta stóra áskorun í lífi sínu yrði að taka við föðurhlutverkinu. Hann sagðist vera búinn að hugsa mikið um það að verða faðir. 

„Kannski ekki í náinni framtíð, en það er klárlega eitthvað sem ég hlakka til að gera og það verður mjög skemmtileg áskorun,“ sagði Rodgers. Hann sagði að hann væri nú á þeim aldri að margir vina hans úr skólanum væru orðnir fjölskyldufeður en hann er 37 ára gamall. 

„Ég hlakka til að bera ábyrgð á lífi einhvers annars. Ég held það verði svo gaman. Mig hefur dreymt um hvernig það verði, ég er mjög spenntur fyrir þeim kafla í lífinu, hvenær sem hann kemur,“ sagði Rodgers. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert