Markús Páll Ellertsson, nemandi í Sæmundarskóla, er mikill íþróttamaður. Hann hélt flotta veislu en gat ekki keypt fermingarfötin sín á Ítalíu vegna kórónuveirunnar líkt og hann hafði ákveðið.
Markús Páll spilar fótbolta og handbolta með íþróttafélaginu Fram. Hann fermdist í Guðríðarkirkju hinn 5. júlí á síðasta ári og segir það hafa verið mjög skemmtilegt.
Fermingardagurinn gekk vel og hann fór í flotta ljósmyndatöku hjá ljósmyndaranum Írisi Stefánsdóttur.
Markús Páll segir að þótt veitingarnar og veislan hafi verið í höndum móður hans, Kristínar Egilsdóttur, hafi hann haft hönd í bagga með að velja þemalitinn í veislunni.
Eins voru uppáhaldsveitingarnar hans í fermingarveislunni. Markús Páll var búsettur úti á Ítalíu og hafði ákveðið að velja sér fermingarföt þar.
„Ég komst ekki út til Ítalíu aftur vegna kórónuveirunnar, svo við enduðum á að þræða allar verslanir í Smáralind og í Kringlunni. Því miður var ekki mikið úrval, en ég endaði á að finna skyrtu og jakka í Zöru. Mamma pantaði síðan skóna á netinu og svo fundum við buxurnar í Hanz.“
Kristín Egilsdóttir móðir Markúsarpáls er hárgreiðslumeistari. Eigandi hárgreiðslustofunnar Marmik í Seljahverfinu. Hún er í skýjunum með ljósmyndirnar sem teknar voru af syni hennar á fermingardaginn.
Kristín segist hafa ákveðið að kaupa nóg af spritti, sem hún hafði á öllum borðum og passaði upp á sóttvarnir þannig að gestirnir væru ekki mikið að snertast.
„Já, það var enginn að knúsa og kyssa, sem ég held að hafi hentað fermingarbarninu vel. Við vorum með stóran sal með svölum og vorum mjög heppin með veður á fermingardaginn. Það var sól og blíða og fólk gat dreift úr sér. Ég passaði upp á að vera með pinnamat og veitingar sem ekki þurfti að snerta. Ég var með gos í dósum og heppnaðist veislan vel í alla staði.“
Eldri sonur Kristínar er nítján ára og hefur hún því fermt áður.
Kristín var í einstaklega fallegum kjól á fermingardaginn og mælir hún með að fermingarmömmur fjárfesti í flík fyrir sig.
„Já mér finnst við fermingarmömmur verða að vera fínar líka. Ég elska að klæða mig upp á. Ég fann fallega kjólinn minn í Nínu á Akranesi.“
Er eitthvað sem þú mælir sérstaklega með á fermingardaginn?
„Ég mæli hiklaust með að fara í ljósmyndatöku. Að eiga fallegar myndir frá fermingunni er dýrmætt og að geta skoðað þær eftir nokkur ár er verðmætt.
Ég hef unnið aðeins með Írisi Stefánsdóttur ljósmyndara og ákvað því að senda á hana nokkrar línur og athuga hvort hún væri ekki til í skemmtilega fermingarmyndatöku með Markúsi Páli úti. Við erum í skýjunum með útkomuna og þessar fallegu ljósmyndir.“