Þriggja ára í fokdýrum leikskóla

Katrín hertogaynja tók afmælismynd af Lúðvík prins.
Katrín hertogaynja tók afmælismynd af Lúðvík prins. AFP

Lúðvík prins, sonur Vilhjálms Bretaprins og Katrínar hertogaynju, fagnar þriggja ára afmæli í dag. Foreldrar hans birtu skemmtilega mynd af honum á hjóli í tilefni dagsins. Lúðvík er þriðja og yngsta barn hertogahjónanna af Cambridge. 

Myndin var tekin fyrr í vikunni en Lúðvík byrjaði í leikskóla á miðvikudaginn. Lúðvík er skælbrosandi á myndinni með bakpoka á bakinu og á sparkhjóli. 

Prinsinn litli byrjaði í Willcocks Nursery School í vikunni. Karlotta prinsessa var einnig í sama leikskóla. Um einkaskóla er að ræða og kostar önnin allt að 3.400 pund eða tæplega 600 þúsund íslenskar krónur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert