Eitt af fyrstu orðum Archies var þýðingarmikið

Harry, Meghan og Archie.
Harry, Meghan og Archie. AFP

Eitt af fyrstu orðum Archies, sonar Harrys Bretaprins og Meghan hertogaynju af Sussex, var amma. Harry sagði í þættinum The Me You Can't See að orðið hefði verið mjög þýðingarmikið fyrir sig.

Harry sagði að í herbergi Archies væri mynd af móður Harrys, Díönu prinsessu, og þau hefðu strax kennt honum hver væri á myndinni.

„Ég er með mynd af henni í herberginu hans og það var eitt af fyrstu orðunum sem hann sagði fyrir utan mamma og pabba; amma. Amma Díana. Það er það fallegasta í heimi, en á sama tíma gerir það mig svo sorgmæddan því hún ætti að vera hér,“ sagði Harry. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert