Spekingar velta því nú fyrir sér hvort Melinda Gates, eiginkona Bill Gates, ætli sér að láta börn sín erfa hærri fjárhæðir. Bill og Melinda standa nú í skilnaði og hefur Melinda ráðið lögfræðing sem er sérfræðingur í sjóðum og fasteignum.
Milljarðamæringurinn Bill hefur áður gefið út að þau hjónin stefndu að því að láta börn sín aðeins erfa lága prósentu af auðæfum sínum, um 10 milljónir bandaríkjadala á hvert barn. Hjónin eiga saman þrjú börn, Jennifer, Rory og Phoebe.
Auðæfi Bill Gates eru metin á um 130 milljarða bandaríkjadala og er hann einn ríkasti maður í heimi.