Leikarinn Alec Baldwin hefur verið að raða niður börnum á undanförnum árum. Hann á sex börn með eiginkonu sinni Hilaria Baldwin og eina dóttur með fyrrum eiginkonu sinni Kim Basinger.
Baldwin tók sig til og mætti með börnin sex á frumsýningu kvikmyndarinnar The Boss Baby þar sem allir voru klæddir í anda sögupersónunnar.
Kvikmyndin verður sýnd hér á landi 3. september. Hún fjallar um Templeton-bræður sem nú eru orðnir fullorðnir og hafa fjarlægst hvor annan. En nýr stubbur með nýstárlega nálgun er um það bil að sameina þá á ný og veita innblástur fyrir ný fjölskylduviðskipti.
Eins og gefur að skilja er mikil vinna að vera með sex börn.
„Til hamingju með feðradaginn elsku þreytti maki minn,“ skrifaði Hilaria Baldwin um helgina á samfélagsmiðla til að óska leikaranum til hamingju með daginn. Hjónin láta engan bilbug á sér finna og hver veit nema þau muni eignast fleiri börn í náinni framtíð.